forfeður og frændfólk
Amman og Afinn á Akranesi heita Lóa og Gunnar og Amman og Afinn í sveitinni heita Þórunn og Rúnar. Álfrún Lóa á líka langömmu, hún heitir Ásdís og er amma Arnars. Svo á hún 2 móðursystur, Heklu og Berglindi, og 3 föðursystur, Hrönn, Silju og Líney. Hekla "móða" á mann sem heitir Brynjar og þau eiga 3 stráka, þá Atla Teit (8) Bjarka (5) og Sigurð (1). Öll búa þau á Akranesi. Berglind "móða" á kærasta sem heitir Oddsteinn og þau eiga einn strák, hann Gunnar Tjörva (1). Þau búa á Akureyri. Álfrún er á leikskóla sem heitir Regnboginn og er í Ártúnsholtinu :)
|